
MEYER TENINGALEIKUR
Meyer er teningaspil fyrir þrjá eða fleiri þar sem þú þarft bara að nota teninga og heilabúið.
Þú þarft:
- Tvo teninga
- Tvö teningaglös
- Einn tening fyrir hvern leikmann til þess að telja lífin
- A.m.k. einn kaldan Tuborg
Markmið
Að slá aðra leikmenn út og standa uppi sem sigurvegari.
Hver leikmaður byrjar með sex líf. Reyndu að halda í lífin þín með öllum ráðum. Sá síðasti sem á líf eftir vinnur leikinn.
Reglur
1
Teningnum er kastað
Leikmaður 1 setur teningana tvo á milli teningaglasanna, hristir og kíkir svo á teningana. Hann má ekki sýna neinum það sem á teningunum stendur.
2
Satt eða logið
Leikmaður 1 tilkynnir næsta leikmanni til vinstri niðurstöðu kastsins.
Hann má:
- Segja satt
- Blöffa og segja hærri tölu en hann fékk í raun – en ekki lægri.
3
Vandið valið (og takið einn sopa líka)
Næsti leikmaður fær teningana til sín en má ekki kíkja á þá. Hann þarf að ákveða hvort hann ætli að trúa eða ekki.
Ef leikmaðurinn velur að trúa kastar hann teningunum án þess að aðrir sjái. Hann verður að tilkynna kast sem er hærra en það sem síðasti leikmaður sagðist hafa fengið.
Ef leikmaðurinn velur að trúa ekki kastinu á undan þarf hann að kalla „blöff”.
Þá þarf leikmaður 1 að sýna á teningana.
- Ef leikmaður 1 var að blöffa missir hann eitt líf
- Ef leikmaður 1 sagði satt missir sá sem kallaði „blöff“ eitt líf
Eftir að líf tapast hefst ný umferð.
Svona gengur þetta koll af kolli þar til aðeins einn leikmaður á líf eftir.
Hæsta kast
MEYER (21) er hæsta mögulega kastið.
Ef leikmaður tilkynnir „Meyer“standa næsta leikmanni þrír möguleikar til boða:
- Trúa Meyernum
- Kalla „blöff“
- Taka ekki afstöðu heldur bara sopa og rétta teningana áfram til næsta leikmanns.
Dæmi
Leikmaður 1 kastar 42 en segist hafa fengið 61.
Leikmaður 2 telur að þetta sé lygi og kallar „blöff“.
Þar sem 42 er ekki það sama og 61 missir leikmaður 1 eitt líf og ný umferð hefst.
Stigatafla
Ítar- og húsreglur
Ef leikmaður kastar lægri tölu en hann þarf til að komast áfram en vill ekki ljúga má hann kasta aftur og rétta teningana áfram til næsta leikmanns til vinstri án þess að kíkja á þá. Þetta á líka við ef Meyer (hæsta kast) hefur verið tilkynnt sem næsta kast á undan. Þá þarf næsti leikmaður að ákveða hvort kastið sé satt eða logið.
Hægt er að koma sér saman um húsreglur ef allir leikmenn eru sammála um það. Húsreglur gætu t.d. verið að leikmenn missi tvö líf ef þeir ljúga um Meyer eða að nóg sé að jafna næsta kast á undan í stað þess að þurfa að hækka töluna. Lykilatriði er að leikmenn komi sér saman um húsreglur áður en fyrsta umferðin hefst.
Svo má koma sér saman um að skála alltaf þegar einhver dettur út, þegar einhver fær 32 eða Litla-Meyer eða í hvert skipti sem einhver kallar „blöff“. Möguleikarnir eru óendanlegir.
Gullna reglan: Treystu engum.
Góða skemmtun!